Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að þjónustustjóra sjúkraskrárkerfisins Sögu í deild rafrænnar þjónustu. Um er að ræða tímabundið starf til eins ár og er starfshlutfall 100%. Teymi Þjónustustjóra sinnir þjónustu við notendur sjúkraskrárkerfisins Sögu. Deildin heyrir undir svið fjármála og rekstrar sem staðsett er í Álfabakka 16. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindarstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2023
Guðmundur Marinó Ingvarsson
–
[email protected]
–
513-5000
Sérfræðilæknir á verkjamiðstöð Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis við verkjamiðstöð Landspítala. Við leitum eftir sérfræðilækni sem er sjálfstæður í...
Sækja um starfAðstoðarmaður við hjúkrun – Neskaupstaður – Hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands HSA óskar eftir að ráða aðstoðarmann við hjúkrun á hjúkrunardeild Umdæmissjúkrahúss...
Sækja um starfSjúkraliði í starf aðstoðarmanns sjúkraþjálfara Lýsing – inngangur Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu? Framundan er...
Sækja um starfSérnámsstöður í lyflækningum, fyrra stig (MRCP) – Sérnámsstöður lækna á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri Lausar eru til umsóknar sérnámsstöður...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingur/nemi – Fáskrúðsfjörður- Hjúkrunarheimilið Uppsalir – SUMARAFLEYSING 2023 Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing eða hjúkrunarfræðinema í sumarafleysingar...
Sækja um starfHjúkrunarfræðingar á slysa- og bráðadeild Spennandi tímar framundan! Nú styttist í að við opnum nýja og glæsilega slysa- og bráðamóttöku...
Sækja um starf