Laus er til umsóknar 40-80% afleysingastaða skólahjúkrunarfræðings hjá HSN Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni eru á sviði heilsuverndar skólabarna ásamt öðrum verkefnum innan heilsugæslunnar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskirteini, íslenskt hjúkrunarleyfi og náms- og starfsferilsskrá.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði.
Tóbaksnotkun er ekki heimiluð á vinnutíma innan HSN.
Starfshlutfall er 40-80%
Umsóknarfrestur er til og með 23.01.2023
Ingibjörg S Ingimundardóttir, Deildarstjóri
–
[email protected]
–
432 4600
Ingibjörg Lára Símonardóttir, Yfirhjúkrunarfræðingur
–
[email protected]
–
432 4600