Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands leitar að verkefnisstjóra í mannauðs- og samskiptateymi sviðsins. Hlutverk teymisins er að efla mannauð og bæta samskipti og starfsumhverfi sviðsins með faglegum ráðningum, skilvirkum ferlum og þjónustumiðaðri nálgun.
Starfssvið verkefnisstjórans snýr að þátttöku og samstarfi í þeim verkefnum sem mannauðs- og samskiptateymið sinnir og ábyrgð á skilgreindum verkþáttum innan þess.
Þjónusta, ráðgjöf og upplýsingamiðlun til starfsfólks
Gerð auglýsinga og ráðningasamninga
Umsjón með móttöku nýs starfsfólks og starfslokaferli
Þátttaka í heilsueflingu innan háskólans og skipulagi viðburða
Önnur tilfallandi verkefni innan mannauðs- og samskiptateymis
Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. í mannauðsstjórnun
Reynsla af mannauðsmálum og ráðgjöf sem þeim tengjast
Góð almenn tölvufærni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
Reynsla af því að halda kynningar æskileg
Reynsla af mannauðskerfum er kostur
Þjónustulund og góð samskiptahæfni, ásamt frumkvæði og sveigjanleiki í starfi
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og fjallað um hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess
Staðfest afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum verður tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og Félags háskólakennara.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands.
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi skólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsmanna í uppbygginu náms og rannsókna við skólann.
Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt enda eykst sífellt hlutfall erlendra starfsmanna og nemenda við sviðið, en fjórðungur bæði starfsmanna og framhaldsnema eru erlendir. Á sviðinu eru um 2000 nemendur og fjölmargir framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.10.2024
Ingibjörg Óðinsdóttir, ingaodins@hi.is
Sími: 5254644
Fá tilkynningu um svipuð störf
Verkefnisstjóri í Nemenda- og kennsluþjónustu, Félagsvísindasvið Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra í Nemenda- og kennsluþjónustu...
Sækja um þetta starf