Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Auglýst er eftir doktorsnema sem kemur til með að starfa undir handleiðslu Dr Haseeb Randhawa og Dr Björn Schäffner við Líf- og umhverfisvísindadeild Verkfræði- og náttúruvísindasviðs, Háskóla Íslands. Starfið er fjármagnað með styrk frá Rannís (Conservation of ancient relationships: Assessment of skates (Rajiformes: Rajidae) and their parasite fauna in Iceland).
Verkefnið miðar að því að kanna fjölbreytileika sníkjudýra í skötum á vistsvæðum sjávar við Ísland. Þekkingin mun að nýtast við mótun á útfærslu verndunaraðgerða til að varðveita þessi tengsl sníkjudýra og hýsla, sem eru í hættu. Rannsóknarmarkmiðin eru að meta fjölbreytileika sníkjudýra á skötum á svæðinu, erfðafræðilegan breytileika bæði skata og sníkjudýra þeirra, og skoða stöðu beggja hópa miðað við hættu á útdauða (IUCN red list), til að stuðla að verndun sníkjudýra og hýsils með uppfærðum verndaráætlunum. Verkefnið er samstarf á milli Háskóla Íslands og Náttúrugripasafnsins (NHM) í London. Verkefnið veitir innsýn í hvaða sjávarsníkjudýr sýkja skötur við Íslandsstrendur og þekkingin nýtist við mat á líffræðilegri fjölbreytni sjávar.
Helstu verkefni nemandans munu fela í sér (i) mat á fjölbreytileika sníkjudýra með því að nota bæði rannsóknir á lífverunum sjálfum og DNA röðum; (ii) greining á þáttum sem móta líffræðilega útbreiðslu og dreifingu sjávarsníkjudýra á íslenskum vistsvæðum; (iii) greiningu á sameindagögnum bæði úr sníkjudýrum og hýslum þeirra (skötum) með raðgreiningu stakra gena og erfðamengjaskimun með næstu kynslóðar raðgreiningu (NGS); (iv) þrívíddarmyndatökur af mótum tauga og vöðva vissra sníkjudýrategunda með flúrljómandi smásjártækni (FISH) og confocal smásjá; og (v) mat á viðmiðum IUCN fyrir hýsil-sníkjudýr í hættu á útdauða. Nemandinn mun afla hágæða gagna um lífverur og erfðasamsetningu þeirra, og leiða eða taka þátt í ritun alþjóðlegra vísindagreina og kynningum á niðurstöðum rannsóknanna á innlendum og erlendum ráðstefnum. Á tímabili verkefnisins verða gerðar greiningar á skyldleika hópa (phylogenetic analysis) og DNA barcoding, sem og myndatökur með FISH tækni á NHM, London í 12 mánuði (eða fleiri) undir eftirliti Dr. Peter Olson (NHM). Neminn verður skráður í HÍ og stundar rannsóknirnar við HÍ og NHM. Viðkomandi mun einnig öðlast dýrmæta reynslu í vísindamiðlun. Með því að framkvæma sjálfstæðar rannsóknir á þverfaglegu sviði, með því að nýta aðstöðu bæði á Íslandi og í Bretlandi getur nemandinn byggt upp rannsóknaferil, öðlast reynslu af því að birta greinar og verkefnastjórnun og umsjón nemenda. Doktorsneminn mun vera ábyrgur fyrir því að leiða rannsókna verkefnið (undir leiðsögn) til að byggja upp starfsferil, sem og yfirfæranlega færni sem nýtist fyrir margvísleg störf og verkefni.
Meistaragráða í sníkjudýrafræði, vistfræði, sjávarlíffræði eða öðru skyldu sviði.
Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna í teymi.
Góð færni í ritaðri og talaðri ensku.
Ráðning í starfið er háð því að umsækjandi sæki formlega um að hefja doktorsnám við Háskóla Íslands í viðeigandi deild og að umsóknin sé samþykkt af deildinni.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn skal skrifuð á ensku og skal innihalda: i) Kynningarbréf þar sem áhuga á starfinu er lýst, ii) Ferilskrá, iii) Afrit af prófskírteinum (BSc og MSc) ásamt einkunnadreifingu, iv) Upplýsingar um tvo umsagnaraðila og hvernig má hafa samband við þá.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi skólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsmanna í uppbygginu náms og rannsókna við skólann. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt enda eykst sífellt hlutfall erlendra starfsmanna og nemenda við sviðið, en fjórðungur bæði starfsmanna og framhaldsnema eru erlendir. Á sviðinu eru um 2000 nemendur og fjölmargir framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.05.2024
Haseeb Randhawa , hrandhawa@hi.is
Sími: 5254425
Doktorsnemi í lífefnafræði/sameindalíffræði við Lífvísindasetur Háskóla Íslands Hlusta Við leitum að doktorsnema til að vinna að rannsóknaverkefni við Lífvísindasetur Háskóla...
Apply For This JobNýdoktor við rannsóknir á hormónasvari æðaþels Hlusta Við leitum að nýdoktor til að vinna að rannsóknaverkefni við Lífvísindasetur Háskóla Íslands...
Apply For This JobAðjúnkt 2 í stærðfræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts 2 í stærðfræði við Námsbraut í stærðfræði innan...
Apply For This JobDósent í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum – Háskóli Íslands – og yfirlæknir á kvenna- og barnaþjónustu Landspítala – Reykjavík Hlusta Laust...
Apply For This Job