Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með um 600 nemendur í 1. – 10. bekk. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.
Stefna og starf Norðlingaskóla grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.
Áhersla er m.a. á náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun þar sem allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks.
Yfirmaður í mötuneyti skólans ber ábyrgð á matseld fyrir nemendur og starfsmenn. Lögð er áhersla á fjölbreyttan og hollan mat þar sem eldað er samkvæmt manneldismarkmiðum og notast er við viðmið skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Yfirmaður mötuneytis hefur yfirumsjón með matreiðslu, eftirliti, hönnun matseðla, frágangi í eldhúsi, samskiptum við birgja auk innkaupa á hráefni og bókhald.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf sem er laust frá 1. ágúst 2024.
Nánari upplýsingar veitir Aðalbjörg Ingadóttir skólastjóri í síma 411-7640 og á Adalbjorg.Ingadottir@rvkskolar.is
Tagged as: atvinna í boði, Deildarstjóri, Draumastarfið, gefandi starf, Grunnskóli, reykjavikurborg
Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með aðra menntun sem nýtist í starfi óskast til starfa við sérkennslu í leikskólanum Rauðhól. Rauðhóll...
Apply For This JobTónlistarskóli Eyjafjarðar auglýsir spennandi stöður tónlistarkennara Trommukennari í 50-100% starfshlutfall. Trommukennslan er að stærstum hluta kennsla nemenda á grunnskólaaldri. Tónmennatakennari...
Apply For This JobLeikskólakennari óskast til starfa í haust við leikskólanum Stakkaborg. Stakkaborg er 3ja deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á...
Apply For This JobViltu vinna í gefandi og spennandi vinnu í hjarta miðbæjar Reykjavíkur? Þá er leikskólinn Miðborg staður fyrir þig. Við óskum...
Apply For This JobHefur þú áhuga á taka þátt í fjölbreyttu leikskólaumhverfi sem er í sífelldri þróun? Rauðhóll er tíu deilda leikskóli með...
Apply For This JobÆvintýraborg við Nauthólsveg er nýlegur sex deilda leikskóli sem er staðsettur við rætur Öskjuhlíðar í göngufæri við Nauthólsvík. Í svona...
Apply For This Job