Leikskólakennari óskast til starfa í haust við leikskólanum Stakkaborg. Stakkaborg er 3ja deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á flæði og leikinn. Áætlað er að stækka leikskólann í haust og bæta við tveimur deildum við leikskólann.
Við leggjum áherslu á að leikurinn er okkar kennsluaðferð og gefum gott rými í leik barnanna. Starfið er laust frá byrjun ágúst en um er að ræða 100% starf.
Við erum öflugur hópur sem vinnur með bestu börn borgarinnar og erum alltaf að takast á við eitthvað nýtt og skemmtilegt. Hver dagur er ævintýri og við erum alltaf að læra eitthvað nýtt. Markvisst er unnið með hreyfingu og flæði milli deilda. Einkunnarorð leikskólans eru gleði, hreyfing og vinátta. Innan leikskólans vinnur öflugt starfsfólk sem leggur áherslu á að öllum börnum líði vel í leikskólanum. Við erum með alla deildarstjóra með kennsluréttindi og viljum fjölga í hópi leikskólakennara við skólann. Við erum dugleg að fara í leiki, nýta útikennslu og það sem umhverfið okkar býður uppá. Næsta vetur munum við leggja áherslu á styrkleika starfsmanna og nýta þá til að gera gott starf enn öflugra við skólann.
Leikskólinn Stakkaborg hefur tvisvar sinnum fengið verðlaun sem einn af Fyrirmyndarstarfsstöðum Reykjavíkurborgar en það er valið út frá viðhorfskönnun starfsmanna. Við höfum einnig fengið Hvatningarverðlaun vegna sérkennslu Stakkaborgar. Hér er því flottur starfsmannahópur sem leggur áherslu á að bæta enn frekar leikskólann með fagmennsku og metnað að leiðarljósi.
Starfsmannavelta er lítil og starfsmenn fá tækifæri til að vaxa í starfi út frá sínum styrkleika og áhugasviðum. Við leggjum ríka áherslu á að allir starfsmenn fái undirbúningstíma og erum með 36 stunda vinnuviku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Fríðindi
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Upplýsingar um starfið gefur Jónína Einarsdóttir leikskólastjóri í síma 411-3151 eða í tölvupósti jonina.einarsdottir@reykjavik.is
Starfamerkingar: atvinna í boði, Draumastarfið, gefandi starf, Grunnskóli, reykjavikurborg
Sæmundarskóli óskar eftir kennara á miðstigi. Einkunnarorð Sæmundarskóla eru gleði, virðing, samvinna. Þau gefa tóninn fyrir skólabraginn og eru leiðarljós...
Sækja um starfHagaborg er 6 deilda leikskóli og þar dvelja 123 börn. Starfið í leikskólanum Hagaborg er fjölbreytt og skemmtilegt og enginn...
Sækja um starfMiðborg er 5 deilda leikskóli í tveimur húsum í miðbænum. Við Lindargötu 26 og Njálsgötu 70. Síðar í haust mun...
Sækja um starfNorðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 600 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í...
Sækja um starfBrim leitar að framsæknum og reynslumiklum upplýsingatæknistjórnanda til að leiða umbreytingar á tækniumhverfi. Þessi staða felur í sér stýringu á...
Sækja um starfOkkur vantar framúrskarandi LEIKSKÓLAKENNARA til starfa í stjórnendateymið í nýja og stærri Brákarborg. Leikskólinn stækkar í ágúst og tekur nýtt...
Sækja um starf