-
Skráðu fyrirtækið
Þegar þú nýskráir fyrirtækið þitt með kennitölu þá sækjum við allar helstu upplýsingar um fyrirtækið og setjum upp fyrirtækjaprófíl.
-
Settu upp auglýsingu
Veldu auglýsingapakka og auglýstu störfin þín, Við komum þeim vel á framfæri. Ef þú vilt aðstoð þá kostar hún ekkert.
-
Fáðu umsóknir
Innifalið er frítt umsóknarkerfi þar sem þú heldur utan um allar umsóknir. Þú getur vísað umsóknum yfir á vefsíðu fyrirtækisins, 50Skills eða önnur mannauðskerfi
Hvað er innifalið í auglýsingunni?
Innifalið í auglýsingu er allt að 30 daga birting á síðunni og minnsta mál að lengja tímann. Auglýsingin er send í tölvupósti til áhugasamra atvinnuleitenda, daginn eftir birtingu á netinu. Auglýsingin birtist einnig á samfélagsmiðlum JOB – Facebook, Instagram, Linkedin og Twitter jafnóðum og hún er birt.
Hægt er að festa auglýsingu efst á forsíðu JOB.
Er fyrirtækjasíða innifalin?
Já, þegar þú skráir fyrirtækið þitt þá setjum við upp kynningarsíðu um fyrirtækið og þar er hægt að koma öllum upplýsingum um fyrirtækið á framfæri. Sjá dæmi hér
Ég auglýsi reglulega, get ég fengið betri kjör?
Já að sjálfsögðu geta þau fyrirtæki sem auglýsa reglulega fengið tilboð í birtingar. Við leggjum mikið upp úr því að auglýsingar á Job séu skilvirkar og ódýrar. Sendu okkur tölvupóst á job@job.is og við gerum þér tilboð sem þú átt erfitt með að hafna. Fyrirtæki og stofnanir sem auglýsa mikið geta nýtt sér áskriftarsamninga okkar þar sem boðið er upp á ótakmarkaðar auglýsingar á föstum verðum. Sjá hér: Áskriftarsamningar
Mig vantar kerfi til að halda utan um umsóknir, eru þið með það?
Við bjóðum öllum okkar viðskiptavinum sinn eigin Mannauðsstjóra. Þar er hægt að halda utan um umsóknir, auglýsingar og tölfræði. Einfalt, þægilegt og ókeypis!
Er hægt að fá endurgreitt?
Við bjóðum fulla endurgreiðslu ef auglýsing fór aldrei í birtingu. Það er hins vegar hæpið að sú staða komi upp þar sem fylla þarf inn út auglýsingaform áður en varan er greidd. Ekki hika við að senda okkur tölvupóst á job@job.is ef þú lendir í vanda. Við erum ætíð til þjónustu!
Get ég hætt við kaupin?
Það er meira en sjálfsagt að hætta við. Hafðu ekki áhyggjur því ef þú kláraðir ekki ferlið birtist auglýsingin ekki. Það þarf að fara alveg á síðasta skrefið þar sem tilgreint er hvort þú kjósir að fá sendan reikning í heimabanka eða greiðir með kreditkorti til að festa kaupin.
Er allt á hreinu?
Vonandi er þetta nægilega skýrt en ef þú ert í einhverjum vafa eða hefur ábendingu máttu endilega senda okkur skilaboð.
Við erum ætíð til þjónustu!