íbúðakjarni fyrir fimm einhverfa einstaklinga
Í kjarnanum verður fimm einstaklingum gert kleift að halda sitt eigið heimili með aðstoð starfsmanna í samræmi við stefnu Reykjavíkurborgar um þjónustu við fatlað fólk. Þjónustan er einstaklingsmiðuð og sveigjanleg og löguð að hverjum og einum til að styðja fólk til þess að eiga sjálfstætt og innihaldsríkt líf á sínum eigin forsendum. Íbúðirnar eru rúmgóðar, með sérverönd en einnig verður sameiginlegt garðrými.
Það voru Félagsbústaðir sem sáu um byggingu kjarnans en verkfræðingar, arkitektar og sérfræðingar frá velferðasviði í málefnum einhverfa unnu saman að hönnuninni með þarfir íbúanna í huga.
Þorláksgeisli er einn af fjórum íbúðarkjörnum sem borgarráð hefur samþykkt að reisa á næstunni, en hinir verða við Austurbrún, á Kambavaði og í Einholti.