Árið 1985 ákváðu bræðurnir Steindór og Jóhann Ingi Gunnarssynir að stofna heildverslun. Úr varð að sameignafélagið J.S.Gunnarsson sf. var stofnað og voru fyrstu húsakynni fyrirtækisins í foreldrahúsum í Breiðholtinu. Í kringum 1990 þá stækkaði eigendahópurinn þegar systirin Heiða hóf störf hjá fyrirtækinu og í framhaldinu var því breytt í hlutafélag.
Fyrsta vörumerkið sem var flutt inn var danska sportvörumerkið H2O og má segja að með því hafi stefna fyrirtækisins verið sett, það er að segja að leggja áherslu á hreyfingu, útvist, sport og skófatnað.
Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað í gegnum árin með auknu vöruframboði en í dag eru helstu vörumerki fyrirtækisins ARENA, DIDRIKSONS, KANGAROOS, KOMBI, PIANO, SIXMIX, TAMARIS, VIKING ásamt fleirum.
Í dag starfar þar samheldinn og öflugur hópur starfsmanna sem hefur það markmið að gera betur á hverjum degi í samskiptum og þjónustu við viðskiptavini sína. J.S Gunnarsson hefur verið á lista CreditInfo yfir framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2012.
Helstu áherslur fyrirtækisins er hátt þjónustustig og að vera samkeppnishæft við erlenda birgja í verði og þjónustu.
Fyrirtækið hefur aðsetur að Fossaleyni 10 í Reykjavík.