Starfsemi okkar er fjölbreytt og er markmið okkar að sinna forvörnum og útkallsþjónustu á þjónustusvæði okkar sem nær yfir öll sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu.
Við sinnum slökkvistarfi skv. lögum um brunavarnir, sjúkraflutningum á svæðinu, almannavörnum, björgun úr sjó, vötnum og utan alfaraleiða ásamt öflugu eldvarnaeftirliti.
Starfsfólk okkar er tæplega 200 staðsett á fjórum slökkvistöðum, en á starfssvæði okkar býr 63% allra landsmanna.