Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði frumu- og líffærafræði við Háskóla Íslands. Um er að ræða samstarf Líf- og umhverfisvísindadeildar Verkfræði- og náttúruvísindasviðs og Læknadeildar Heilbrigðisvísindasviðs og verður 50% starfsins við hvora deild.
Leitað er að einstaklingi með bakgrunn á sviði frumulíffræði og hefur áhuga á að koma að uppbyggingu kennslu og rannsókna á sviði frumulíffræði og líffærafræði innan líf- og læknavísinda.
Kennsla og kennsluþróun í námskeiðum á sviði frumulíffræði, líffærafræði og skyldum greinum.
Leiðbeining rannsóknarverkefna í grunn- og framhaldsnámi.
Uppbygging sjálfstæðra rannsókna á sviði frumulíffræði.
Öflun rannsóknarstyrkja.
Almenn þátttaka í nefndum, ráðum og starfshópum innan hlutaðeigandi eininga.
Doktorspróf í frumulíffræði eða skyldum greinum.
Reynsla af háskólakennslu.
Reynsla af umsjón með námskeiðum á háskólastigi er æskileg og reynsla af kennsluþróun á háskólastigi er kostur.
Rannsóknareynsla á sviði frumulíffræði og ritrýndar rannsóknargreinar á fagsviðinu.
Sérþekking á sameindalíffræði og vefjafræði er kostur.
Reynsla af stjórnun rannsóknarverkefna og öflun rannsóknarstyrkja.
Góð færni í ensku í ræðu og riti.
Góð íslenskukunnátta er kostur.
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sjálfstæði.
Við ráðningu verður horft til þess að rannsóknaáform og kennslureynsla þess er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Líf- og umhverfisvísindadeildar og Læknadeildar.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða skv. nánara samkomulagi.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um þrjá mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Ráðið verður í starfið til fimm ára fyrst í stað, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi háskólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsfólks í uppbyggingu náms og rannsókna. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt, þar sem fjórðungur bæði starfsfólks og framhaldsnema við sviðið eru erlendir, og það hlutfall er sífellt að aukast. Á sviðinu eru um 2000 nemendur og fjölmargir framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Við Líf- og umhverfisvísindadeild fer meðal annars fram grunnkennsla á sviði líffræði og sameindalíffræði auk menntunar MS- og doktorsnema á fagsviðunum. Lögð er áhersla á grunnrannsóknir og miðlun vísindaþekkingar til samfélagsins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.05.2024
Snæbjörn Pálsson, snaebj@hi.is
Sími: 5254293
Þórarinn Guðjónsson, tgudjons@hi.is
Sími: 5254827
Hólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 70 starfsmenn. Sérstök áhersla er...
Apply For This JobDoktorsnemi í faraldsfræði Hlusta Leitað er að doktorsnema í faraldsfræði, með áhuga á hnattrænni heilsu, við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Læknadeild...
Apply For This JobAðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts við Menntavísindasvið Háskóla...
Apply For This JobDoktorsnemi við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Hlusta Umhverfis- og byggingarverkfræðideild er með laust fullt starf doktorsnema í umhverfisfræði vegna verkefnisins „Íslenskt...
Apply For This JobDoktorsnemi í sníkjudýrafræði Hlusta Auglýst er eftir doktorsnema sem kemur til með að starfa undir handleiðslu Dr Haseeb Randhawa og...
Apply For This JobNýdoktor við rannsóknir á hormónasvari æðaþels Hlusta Við leitum að nýdoktor til að vinna að rannsóknaverkefni við Lífvísindasetur Háskóla Íslands...
Apply For This Job