Tónlistarskóli Eyjafjarðar auglýsir spennandi stöður tónlistarkennara
Trommukennari í 50-100% starfshlutfall.
Trommukennslan er að stærstum hluta kennsla nemenda á grunnskólaaldri.
Tónmennatakennari í 50-100% starfshlutfall
Kennsla í leikskólum og yngstu bekkjum grunnskóla á starfssvæði tónlistarskólans.
Áhugasvið kennara og hæfni getur ráðið miklu um áherslur í kennslunni.
Önnur hljóðfærakennsla. Ýmislegt gæti verið í boði en skólanum hentar afar vel að viðkomandi kennarar geti kennt á fleiri en eitt hljóðfæri.
Tónlistarskóli Eyjafjarðar er rekinn af 4 sveitarfélögum við Eyjafjörð. Skólinn vinnur í nánum tengslum við grunnskólana í sveitarfélögunum og fer hljóðfærakennslan að stærstum hluta fram á skólatíma. Skólinn er einnig með starfsstöð á Akureyri þar sem hann sinnir nemendum í framhaldsskólunum og öðrum sem það hentar.
Starfstími skólans fylgir í megin dráttum starfi grunnskólanna. Kennt er í 4. lotum með góðu haust og vetrarfríi. Skólinn starfar eftir öflugri starfs- og endurmenntunaráætlun þar sem leiðarstefið er leiðsagnarnám og leiðsagnarmat. Skólinn ætlar sér að efla teymisvinnu bæði innan skólans og eftir atvikum þvert á skólagerðir. Um 200 nemendur eru við skólann.
Við skólann starfa kennarar á fjölbreytt hljóðfæri og það er skólanum kappsmál að viðhalda fjölbreytni í námsframboði.
Verkefni kennara eru:
Umsækjendur skulu hafa tónlistarkennaramenntun eða aðra menntun sem nýtist í starfi.
Laun eru samkvæmt samningi FT og FÍH við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Umsækjandi þarf að hafa bílpróf og bíl til umráða. Akstur greiddur samkvæmt kjarasamningi.
Á Akureyri er alla helstu þjónustu að finna, tónleikahúsið Hof, starfandi sinfóníuhljómsveit og leikhús. Einstök náttúrufegurð og fjölbreytt aðstaða til útivistar.
Umsóknarfrestur er til 3.maí 2024
Nánari upplýsingar:
Guðlaugur Viktorsson, skólastjóri
te@krummi.is
Starfamerkingar: Kennari, tónlist, Tónlistarkennari