Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólann Geislabaug.
Geislabaugur er 5 deilda leikskóli með 104 börnum. Leikskólinn stendur við Kristnibraut 26 í Grafarholti í Reykjavík. Einkunnarorð leikskólans eru Virðing – Sköpun – Gleði – Jafnrétti. Leikskólinn starfar eftir hugmyndafræði Reggio Emilia þar sem barnið er í brennidepli og leikurinn er hornsteinn starfsins.
Áhersla er lögð á skapandi starf, lýðræði og gefa öllum börnum jöfn tækifæri til náms, einnig erum við í innleiðingu jákvæðs aga. Leikskólinn hefur fengið Hvatningaverðlaun skóla og frístundasviðs og fengið styrk fyrir kennara til náms og þjálfunar á Ítalíu frá Erasmus +
Gott samstarf er á milli skólana í hverfinu og höfum við tekið þátt í þróunarverkefni sem hafði það markmið að efla læsi í hverfinu. Tökum einnig virkan þátt í innleiðingu nýju menntastefnu Reykjavíkurborgar, Látum draumana rætast, og höfum fengið styrk vegna læsisverkefnis sem ber heitið Orð eru til alls vís. Er það einnig samstarfsverkefni skólanna í hverfinu.
Við erum metnaðarfullur og framsækinn leikskóli og horfum frekar til tækifæra en hindrana. Vilt þú starfa í teymi með fjölbreytta þekkingu á leikskólastarfi?
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þóra Jóna Jónatansdóttir í síma 411-3860 eða með því að senda fyrirspurnir á netfangið Thora.Jona.Jonatansdottir@rvkskolar.is
Starfamerkingar: atvinna í boði, Draumastarfið, leikskóli, reykjavikurborg