Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf forstöðumanns við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.
Félagsvísindastofnun er rannsókna- og fræðastofnun innan Háskóla Íslands. Megin markmið stofnunarinnar hefur frá upphafi verið að annast hagnýtar og fræðilegar rannsóknir sem stuðla að því að styrkja og efla íslenskt samfélag. Stofnunin er öflugur þátttakandi í uppbyggingu rannsóknarinnviða í félagsvísindum og er samstarfsvettvangur rannsókna á Félagsvísindasviði. Stofnunin sinnir jafnframt verkefnum innan háskólans sem utan t.d. með því að framkvæma úttektir og mat á samfélagslegum árangri ýmissa stjórnvaldsaðgerða.
Forstöðumaður stýrir stofnuninni og ber ábyrgð á daglegum rekstri hennar, aflar henni verkefna og tekna, annast áætlanagerð, fjármál og starfsmannamál og sér um framkvæmd á þeim málum sem stjórn stofnunarinnar felur honum. Forstöðumaður ber ábyrgð á þeim rannsóknarverkefnum sem stofnunin hýsir, stýrir þeim eftir aðstæðum og er ábyrgur fyrir fagmennsku, framgangi þeirra og skilum.
Í boði er mjög áhugavert og krefjandi starf fyrir öflugan einstakling sem vill taka þátt í að leiða stofnunina á komandi árum.
Daglegur rekstur stofnunar, s.s. stjórnun og starfsmannahald, fjármál og áætlanagerð, samskipti við stjórn stofnunar og forseta fræðasviðs.
Öflun verkefna og styrkja.
Stefnumótun, langtímaáætlanagerð og þróunarvinna.
Upplýsingagjöf og kynningarmál um málefni stofnunarinnar.
Umsjón rannsóknarverkefna eftir því sem við á.
Samstarf stofnunar við aðila innan og utan HÍ.
Meistaragráða á sviði félagsvísinda eða skyldra greina sem nýtist í starfi.
Doktorspróf á sviði félagsvísinda eða skyldra greina er æskilegt.
Þekking og reynsla af rannsóknaraðferðum félagsvísinda.
Reynsla af alþjóðlegu og þverfaglegu fræðastarfi er kostur.
Reynsla af gerð umsókna um innlenda og alþjóðlega rannsóknarstyrki er kostur.
Leiðtogahæfni og reynsla af stjórnun.
Frumkvæði, áræðni og sjálfstæð vinnubrögð.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleiki og hugkvæmni við lausn vandamála.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst en eigi síðar en 1. ágúst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá.
Bréf þar sem áhuga á starfinu er lýst og gerð er grein fyrir hvað umsækjandi telur sig geta lagt af mörkum til þess.
Staðfest afrit af prófskírteinum.
Upplýsingar um umsagnaraðila.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands.
Á Félagsvísindaviði starfa á þriðja hundrað manns að kennslu og rannsóknum. Vísindafólk sviðsins stundar grunnrannsóknir, hagnýtar rannsóknir og þjónusturannsóknir og lögð er mikil áhersla á fjölbreytta miðlun þekkingar, öflugar samræður við íslenskt samfélag og alþjóðlega fræðasamfélagið.
Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands með stórt og fjölbreytt safn rannsóknarverkefna. Háskóli Íslands veitir nemendum víðtæka menntun á öllum helstu fræðasviðum og þjónar stofnunum, fyrirtækjum og stjórnvöldum í þágu almannaheilla.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.05.2024
Eva Marín Hlynsdóttir, evamarin@hi.is