Auðnast
Við erum með þér í liði
Við leitum að talnaglöggum einstaklingi í stöðu sérfræðings í fjármálum. Leitað er að einstaklingi sem er sjálfstæður í vinnubrögðum.
Starfshlutfall er samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
· Útgáfa og innheimta reikninga til skuldunauta
· Móttaka og greiðsla reikninga til lánadrottna
· Samskipti við bókhaldsþjónustu
· Samskipti við viðskiptavini Auðnast í tengslum við reikninga
· Náið samstarf við fjármálastjóra og verkefnastjóra
· Greiningar á rekstri
· Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur:
· Háskólamenntun í reikningshaldi, viðskiptafræði, fjármálum eða tengdum greinum. Starfið gæti hentað framhaldsnemum samhliða námi.
· Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
· Þekking á DK er kostur
· Nákvæm og öguð vinnubrögð
· Góð íslensku- og enskukunnátta á rituðu og töluðu máli