Viltu vinna á skemmtilegum og notalegum vinnustað og njóta fjölbreyttra daga? Leggur þú alúð í starfið þitt? Þá er þú líklega manneskjan sem við viljum fá til liðs við okkur. Laust er til umsóknar starf sérkennara-stuðningsaðila í leikskólanum Jöklaborg í Seljahverfi Reykjavík. Hlutastarf kemur til greina.
Í Jöklaborg eru 118 börn á aldrinum 1-6 ára. Leiðarljós okkar eru gleði, virðing og sköpun. Við leggjum áherslu á að gleði sé ríkjandi í öllu starfi leikskólans, viðurkennandi samskipti og að virðing sé borin fyrir hverjum einstaklingi.
Það eru spennandi tímar framundan hjá okkur. Endurskipulagning starfsins stendur til þar sem starf í anda Reggio Emilia verður í hávegum haft með Aðalnámskrá leikskóla, Menntastefnu Reykjavíkurborgar og lög um leikskóla að leiðarljósi. Þá verður áhersla jafnframt á læsi og að efla íslenskan orðaforða.
Lubbi ( Forsíða (lubbi.is) )og Blær (Um Vináttu | Barnaheill ) eru okkur góðum kunn og munum við vinna áfram með þau verkefni.
Sjá kynningu á Jöklaborg hér: https://vimeo.com/304575168
Helstu verkefni og ábyrgð
– Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans undir stjórn sérkennslustjóra og deildarstjóra.
– Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning.
– Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
– Að vinna að gerð einstaklingsnámskrár og fylgja henni eftir.
– Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu og öðrum störfum innan leikskólans sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
– Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
– Góð samskiptafærni.
– Frumkvæði í starfi.
– Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
– Góð íslenskukunnátta algjört skilyrði. íslenska B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
– 36 stunda vinnuvika
– Sundkort
– Menningarkort
– Samgöngustyrkur
– Heilsustyrkur
– Hádegismatur
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásta Kristín Svavarsdóttir í síma 411 3250, 696 5096 eða í gegnum tölvupóst, joklaborg@reykjavik.is