Norðlingaskóli óskar eftir að ráða umsjónarkennara í 8. – 10. bekk í 100% stöðugildi, með áherslu á tungumálakennslu þ.e. íslensku, ensku og dönsku, frá 1. ágúst 2024. Um er að ræða tímabundið starf skólaárið 2024-2025.
Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með um 600 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í Reykjavík, þ.e. í Norðlingaholti. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.
Stefna og starf Norðlingaskóla grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.
Áhersla er m.a. á náið samráð við foreldra, samkennslu árganga, einstaklingsmiðað nám, smiðjuvinnu, nýbreytni og skólaþróun. Allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks. Þá leggur skólinn mikla áherslu á að vera í nánum tengslum við grenndarsamfélagið.
Hæfniskröfur:
Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Kennarasambands Íslands. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn sína ásamt öllum fylgiskjölum, þar með talið leyfisbréfi til kennslu, í gegnum vef Reykjavíkurborgar um laus störf þar sem starfið er auglýst.
Starfshlutfall: 100%
Umsóknarfrestur: 3. maí 2024
Ráðningarform: Tímabundin ráðning
Umsækjendur eru beðnir um að skila umsóknum sínum ásamt ferilskrá og upplýsingum um nám og starfsreynslu rafrænt í gegnum vef Reykjavíkur þar sem starfið er auglýst.
Því miður liggja heimsíður margra grunnskóla niðri vegna netárasar og það á við um heimasíðu Norðlingaskóla. Meðan þetta ástand varir má nálgast allra helstu upplýsingar um skólann á eftirfarandi slóð https://reykjavik.is/nordlingaskoli
Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalbjörg Ingadóttir skólastjóri (adalbjorg.ingadottir@rvkskolar.is)
Starfamerkingar: atvinna í boði, Draumastarfið, Grunnskóli
Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi eða starfsmaður með aðra menntun sem nýtist í starfi óskast til starfa við sérkennslu í leikskólanum Rauðhól. Rauðhóll...
Sækja um starfNordisk Energiforskning i Oslo søker praktikanter høsten 2024 I Nordisk Energiforskning får du en praksisplass med fokus på energi og...
Sækja um starfDeildarstjóri óskast til starfa í leikskólann Hamra. Ef ekki fæst deildarstjóri til starfa er leitað eftir einstaklingum með aðra menntun...
Sækja um starfEf þú hefur brennandi áhuga á fjölbreyttu skólastarfi þá viljum við í Hólabrekkuskóla endilega fá þig til liðs við okkur....
Sækja um starfHamraskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-7.bekk, staðsettur í Grafarvogi. Í skólanum eru rúmlega 200 nemendur og um 45 starfsmenn....
Sækja um starfMiðborg er 5 deilda leikskóli í tveimur húsum í miðbænum. Við Lindargötu 26 og Njálsgötu 70. Síðar í haust mun...
Sækja um starf