Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Tvö full störf doktorsnema í rafmagns- og tölvuverkfræði á sviði læknisfræðilegrar myndgreiningar eru laus til umsóknar. Bæði verkefnin eru styrkt af RANNÍS og eru til þriggja ára. Verkefnin eru samstarfsverkefni Háskóla Íslands og alþjóðlegra rannsóknahópa verkfræðinga og lækna frá bæði Evrópu og Bandaríkjunum.
Markmið fyrra verkefnisins er þróun sjálfvirkra myndvinnsluaðferða til greiningar og rannsókna á heilahrörnun í sjúklingum með Parkinson plús sjúkdóma. Doktorsneminn mun þróa nýstárlega myndvinnsluaðferð, sem merkir þau heilasvæði sem tengjast þessum sjúkdómum út frá segulómmyndum og í framhaldi, þróa flokkara fyrir lífmerki tengd Parkinson Plús sjúkdómum í von um að geta greint sjúkdómana fyrr en mögulegt er í dag. Aðferðirnar verða prófaðar á stórum gagnasöfnum segulómmynda frá Evrópu og Bandaríkjunum.
Seinna verkefnið hefur það að markmiði að þróa myndgreiningaraðferðir fyrir áhættumat á beinbrotum. Beinþynning er langvinnur sjúkdómur sem eykur líkur á beinbrotum og með hækkandi aldrei aukast líkurnar m.a. á mjaðmarbrotum. Myndtengd lífmerki unnin með smábútaaðferðum (e. finite element modeling) eru talin hafa forspárgildi fyrir hættu á mjaðmarbrotum en ekki hefur tekist að nýta þau innan læknisfræðinnar sökum þess að handmerkja þarf beinin í tölvusneiðmyndum (CT). Doktorsneminn mun þróa sjálfvirka myndgreiningaraðferð sem merkir lærlegg af mikill nákvæmni óháð vali á CT tæki. Til þess að sannreyna aðferðina munum við í samstarfi við hóp erlendra vísindamanna og aðgangi að gögnum úr fjölda CT tækja byggja smábúatlíkön fyrir fjölbreytta klíníska notkun. Aðferðin mun auðvelda beinarannsóknir og flýta fyrir notkun nýrra skimunaraðferða við áhættumat á beinbrotum í lækningaskyni.
MS gráða á tengdum sviðum læknisfræðilegrar myndgreiningar, til dæmis rafmagns- og tölvuverkfræði, heilbrigðisverkfræði, tölvunarfræði, hagnýtri stærðfræði eða eðlisfræði.
Þekking á gervigreind, djúpum tauganetum og vélrænum lærdómi (e. machine learning) er kostur.
Sjálfstæð vinnubrögð og færni í mannlegum samskiptum.
Góð enskukunnátta í ræðu og riti.
Ráðning í starfið er háð því að umsækjandi sæki formlega um að hefja doktorsnám við Háskóla Íslands í viðeigandi deild og að umsóknin sé samþykkt af deildinni.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Doktorsnemastarfið hefst vorið 2025 en möguleiki er á að hefja störf fyrr.
Umsókn skal innihalda i) umsóknarbréf ii) ferilskrá (starfsreynsla, forritunarhæfni, ritskrá ef einhver er), iii) afrit af prófskírteinum (BS og MS) iv) eina blaðsíðu um áhuga á rannsóknum v) upplýsingar um tvo umsagnaraðila, tengsl þeirra við umsækjanda og hvernig má hafa samband við þá.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands
Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun. Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi skólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsmanna í uppbygginu náms og rannsókna við skólann.
Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 400 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt enda eykst sífellt hlutfall erlendra starfsmanna og nemenda við sviðið, en fjórðungur bæði starfsmanna og framhaldsnema eru erlendir. Á sviðinu eru um 2000 nemendur, þar af um fjórðungurinn framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.08.2024
Lotta María Ellingsen, lotta@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Doktorsnemi í jarðskjálftafræði Hlusta Viltu vinna doktorsverkefni þitt í jarðfræði og rannsaka spennandi flekaskil í Norður-Atlantshafi? Við óskum eftir umsóknum...
Sækja um þetta starfLektor við Námsbraut í sjúkraþjálfun – Heilbrigðisvísindasvið – Háskóli Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors við Námsbraut...
Sækja um þetta starfVið leggjum áherslu á að gleði sé ríkjandi í öllu starfi leikskólans, viðurkennandi samskipti og að virðing sé borin fyrir...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í eðlisfræði Hlusta Laust er til umsóknar starf doktorsnema í eðlisfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Starfið er...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í þjóðfræði Hlusta Félagsfræði-, mannfræði og þjóðfræðideild Háskóla Íslands auglýsir starf doktorsnema sem styrkt er til 3 ára af...
Sækja um þetta starfLeikskólinn Nóaborg er staðsettur í Stangarholti 11, rétt ofan við Hlemm. Einkunnarorð leikskólans eru Leikum-Lærum- Njótum. Leikskólinn leggur áherslu á...
Sækja um þetta starf