Norðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með um 600 nemendur í 1. – 10. bekk. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf.
Stefna og starf Norðlingaskóla grundvallast á því lífsviðhorfi að hverjum einstaklingi skuli búinn námsskilyrði svo hann megi þroskast og dafna á eigin forsendum og útskrifast úr grunnskóla sem sjálfstæður, sterkur og lífsglaður einstaklingur.
Áhersla er m.a. á náið samráð við foreldra, nýbreytni og skólaþróun þar sem allt skólastarf byggir á teymisvinnu starfsfólks.
Yfirmaður í mötuneyti skólans ber ábyrgð á matseld fyrir nemendur og starfsmenn. Lögð er áhersla á fjölbreyttan og hollan mat þar sem eldað er samkvæmt manneldismarkmiðum og notast er við viðmið skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar. Yfirmaður mötuneytis hefur yfirumsjón með matreiðslu, eftirliti, hönnun matseðla, frágangi í eldhúsi, samskiptum við birgja auk innkaupa á hráefni og bókhald.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar og Sameykis.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf sem er laust frá 1. ágúst 2024.
Nánari upplýsingar veitir Aðalbjörg Ingadóttir skólastjóri í síma 411-7640 og á Adalbjorg.Ingadottir@rvkskolar.is
Starfamerkingar: atvinna í boði, Deildarstjóri, Draumastarfið, gefandi starf, Grunnskóli, reykjavikurborg
Sæmundarskóli óskar eftir Þroskaþjálfa. Einkunnarorð Sæmundarskóla eru gleði, virðing, samvinna. Þau gefa tóninn fyrir skólabraginn og eru leiðarljós í starfinu....
Sækja um starfLeikskólakennari óskast til starfa í leikskólann Hamra. Ef ekki fæst leikskólakennari til starfa er leitað eftir einstaklingum með aðra menntun...
Sækja um starfNorðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með rúmlega 600 nemendur í 1. – 10. bekk. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi í...
Sækja um starfHólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 70 starfsmenn. Sérstök áhersla er...
Sækja um starfVið látum drauma barna rætast! Viltu bætast í samheldin starfsmannahóp á Hofi? Leikskólakennarar óskast til starfa í leikskólann Hof. Leikskólinn...
Sækja um starfHólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 70 starfsmenn. Sérstök áhersla er...
Sækja um starf