Almar Þór Þorgeirsson og Ólöf Ingibergsdóttir opnuðu fyrstu búðina þann 8 apríl árið 2009 í Sunnumörk 2 í Hveragerði. Síðar opnuðu þau útibú í Larsenstræti 3 á Selfossi og á Suðurlandsvegi 1 á Hellu . Rúmlega 40 manns starfa hjá Almari bakara í dag.
Ástríða og áhugi á bakstri drífa þau afram.
Mikil áhersla er á holl og góð brauð sem og fjölbreyttu úrvali af bakkelsi og samlokum. Gæðahráefni og fagmennska er höfð í fyrirrúmi.
Þetta er fjölskyldufyrirtæki er í stöðugri framþróun með áherslu á góða þjónustu.