Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar starf doktorsnema í eðlisfræði við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Starfið er á sviði segulmetaefna með áherslu á fræðilega útreikninga og er styrkt til fjögurra ára af Rannsóknasjóði Vísinda- og tækniráðs og Linnaeus Háskóla.
Segulmetaefni samanstanda af stóru safni örsmárra mynstra sem saman skapa eiginleika sem ekki er unnt að ná fram með ómynstruðum efnum. Metaefni sem byggja á spunatækni eru notuð í ýmsum nýjum tæknilausnum svo sem á sviði gervigreindar og tauganeta. Í slíkum kerfum víxlverka spunakerfi í gegnum segulsvið og haga sér svipað og taugafrumur í heila. Þannig kerfi má nýta í flókna tölvureikninga og hafa mun minni orkukostnað en hefðbundnar aðferðir, þar sem nýtni samhliðareikninga er mjög mikil. Í þessu verkefni verður byggður efnistæknilegur og fræðilegur grundvöllur fyrir framleiðslu segulmetaefna. Seguluppröðun þeirra og tímasvörun verða rannsökuð með það að markmiði að unnt sé að stjórna eiginleikum þeirra. Nemandinn mun vinna að þróun fræðilegra og tölvunarfræðilegra aðferða til að rannsaka og skilja seguluppröðun og segulhegðun í metaefnum. Nemandinn mun vinna í samstarfi við tilraunahópa á sama sviði.
Rannsóknahópurinn
Leiðbeinendur verða Dr. Pavel Bessarab, gestaprófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands og lektor við Linneaus Háskóla í Kalmar og Dr. Unnar Arnalds, prófessor við Raunvísindadeild Háskóla Íslands. Rannsóknarvinnan mun fara fram við bæði Háskóla Íslands og Linnaeus Háskóla og mun nemandinn útskrifast með tvöfalda gráðu frá báðum háskólum. Vinnan er hluti af stærra öndvegisverkefni sem við starfa 3-4 aðrir doktorsnemar og nýdoktorar.
Meistaragráða í eðlisfræði, verkfræðilegri eðlisfræði, efnisfræði eða skyldum greinum.
Reynsla í fræðilegri eðlisfræði og seguleiginleikum efna er æskileg.
Reynsla og þekking í forritun.
Þekking á tölvuútreikningum og tölfræði, hermunarreikningum og/eða atómhegðunarreikningum er æskileg.
Góð hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
Góð enskukunnátta, bæði í rituðu og töluðu máli.
Ráðning í starfið er háð því að umsækjandi sæki formlega um að hefja doktorsnám við Háskóla Íslands í viðeigandi deild og að umsóknin sé samþykkt af deildinni.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Upphafsdagur verkefnisins er umsemjanlegur en æskilegt væri að hefja störf 1. nóvember 2024.
Umsókninni skal fylgja:
Kynningarbréf þar sem fram kemur hvað vekur áhuga umsækjanda á verkefninu og ástæður þess að viðkomandi vill vinna að doktorsverkefni (hámark ein blaðsíða).
Ferilskrá (hámark þrjár blaðsíður).
Afrit af prófskírteinum (grunnnám og meistaranám).
Upplýsingar um tvo meðmælendur og hvernig má hafa samband við þá.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi háskólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsfólks í uppbyggingu náms og rannsókna. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt, þar sem fjórðungur bæði starfsfólks og framhaldsnema við sviðið eru erlendir, og það hlutfall er sífellt að aukast. Á sviðinu eru um 2000 nemendur og fjölmargir framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.08.2024
Unnar Bjarni Arnalds, uarnalds@hi.is
Pavel Bessarab, bessarab@hi.is
Fá tilkynningu um svipuð störf
Tvö störf doktorsnema í rafmagns- og tölvuverkfræði Hlusta Tvö full störf doktorsnema í rafmagns- og tölvuverkfræði á sviði læknisfræðilegrar myndgreiningar...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í jarðskjálftafræði Hlusta Viltu vinna doktorsverkefni þitt í jarðfræði og rannsaka spennandi flekaskil í Norður-Atlantshafi? Við óskum eftir umsóknum...
Sækja um þetta starfVið leggjum áherslu á að gleði sé ríkjandi í öllu starfi leikskólans, viðurkennandi samskipti og að virðing sé borin fyrir...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands: Áhrifatryggð í samfélagslegri nýsköpun Hlusta Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum um doktorsnemastöðu, sem nýtur...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar starf doktorsnema við Lyfjafræðideild, Heilbrigðisvísindasviðs, Háskóla Íslands, styrkt af doktorsnámssjóði...
Sækja um þetta starfDoktorsnemi í þjóðfræði Hlusta Félagsfræði-, mannfræði og þjóðfræðideild Háskóla Íslands auglýsir starf doktorsnema sem styrkt er til 3 ára af...
Sækja um þetta starf