Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Leitað er að doktorsnema í faraldsfræði, með áhuga á hnattrænni heilsu, við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Læknadeild Háskóla Íslands. Staðan er styrkt af Rannís.
Doktorsneminn mun taka þátt í rannsóknarverkefni sem hefur hlotið styrk frá Rannís á upplifunum og útkomum unglingsstúlkna og ungra kvenna í Mósambík sem nálgast fyrirbyggjandi lyfjameðferð gegn HIV (PrEP).
Í Afríku sunnan Sahara eru unglingsstúlkur og ungar konur sérlega útsettar fyrir HIV, en 75% nýrra smita í aldurshópnum 15-24 ára eru á meðal kvenna. Fyrirbyggjandi HIV lyfjameðferð, PrEP, er mjög árangursrík forvarnaraðferð sem er lykilþáttur í alþjóðlegri baráttu við faraldurinn, en hefur þó reynst misvel á meðal kvenna í Afríku. Misjafn árangur skýrist einkum af því að brottfall úr meðferð er hátt og meðferðarheldni misgóð.
HIV faraldurinn í Mósambík er einn af tíu alvarlegustu faröldrum heims, en 13.2% fullorðinna eru HIV smituð. Í þessu verkefni munum við lýsa núverandi stöðu í PrEP meðferð í Manica héraði í Mósambík, PrEP meðferðarferli, brottfalli og helstu flöskuhálsum. Við munum gera ferilrannsókn á unglingsstúlkum og ungum konum sem eru að hefja PrEP meðferð og bera kennsl á einstaklingsbreytur sem eru tengdar brottfalli úr meðferð; lýsa reynslu heilbrigðisstarfsfólks af PrEP þjónustu, og safna frumgögnum til að undirbúa inngripsrannsókn á gæðabetrunarinngripi í PrEP þjónustu.
Doktorsneminn mun koma að undirbúningi rannsóknarinnar, leyfisumsóknum og hönnun spurningalista; sinna hreinsun gagna og eftirliti með gagnasöfnun auk annarra tilfallandi verkefna tengdu rannsókninni þegar hún hefst; og auk þess greina gögn úr rannsókninni og skrifa greinar. Verkefnið felur í sér samstarf við rannsóknarhóp í Mósambík, og gæti falið í sér ferð(ir) þangað ásamt leiðbeinanda, eftir áhuga nemanda.
– Meistarapróf í faraldsfræði, líftölfræði, lýðheilsuvísindum, sálfræði, mannfræði eða skyldum greinum– Reynsla af gagnagreiningu í Stata, R eða sambærilegum forritum– Góð færni í ritaðri og talaðri ensku– Færni í portúgölsku eða skyldu tungumáli (spænsku / frönsku) er kostur– Góð samstarfs- og samskiptahæfni og menningarlæsi– Sjálfstæði í vinnubrögðum
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Í boði er styrkur til tveggja og hálfs árs miðað við 100% starfshlutfall og laun samkvæmt gildandi kjarasamningum sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag Háskólakennara hafa gert. Doktorsneminn mun taka þátt í skrifum styrkumsókna til frekari fjáröflunar. Doktorsnemanum mun einnig standa til boða að starfa sem aðstoðarkennari í námskeiðum í faraldsfræði og/eða alþjóðaheilsu.
Doktorsneminn mun sækja um og vera skráður í doktorsnám í faraldsfræði https://www.hi.is/faraldsfraedi-doktorsnam og starfa við Miðstöð í lýðheilsuvísindum epiresearch.hi.is
Með starfsumsókn þurfa að fylgja eftirtalin skjöl á ensku eða íslensku:– Staðfest afrit af námsferli með raðeinkunn í grunn- og meistaranámi– Staðfest afrit af meistaragráðu ef námi var ekki lokið við HÍ– Ferilskrá– Nöfn tveggja meðmælenda
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands.
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.05.2024
Kristjana Hrönn Ásbjörnsdóttir, kha@hi.is
Doktorsnemi við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Hlusta Umhverfis- og byggingarverkfræðideild er með laust fullt starf doktorsnema í umhverfisfræði vegna verkefnisins „Íslenskt...
Sækja um starfHólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 70 starfsmenn. Sérstök áhersla er...
Sækja um starfAðjúnkt í dönsku og dönskukennslu Hlusta Laust er til umsóknar 50-80% starf aðjúnkts í dönsku og dönskukennslu við Menntavísindasvið Háskóla...
Sækja um starfDósent í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum – Háskóli Íslands – og yfirlæknir á kvenna- og barnaþjónustu Landspítala – Reykjavík Hlusta Laust...
Sækja um starfHamraskóli er rúmlega 200 barna skóli frá 1. -7. bekk sem staðsettur er í Hamrahvefinu í Grafarvogi. Helstu verkefni og...
Sækja um starfDoktorsnemi í sníkjudýrafræði Hlusta Auglýst er eftir doktorsnema sem kemur til með að starfa undir handleiðslu Dr Haseeb Randhawa og...
Sækja um starf