Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Umhverfis- og byggingarverkfræðideild er með laust fullt starf doktorsnema í umhverfisfræði vegna verkefnisins „Íslenskt móberg bjargar heiminum?“. Verkefnið hefur verið fjármagnað til 2,5 ára en sækja þarf um auka fjárveitingu fyrir síðustu 6 mánuðunum á meðan verkefninu stendur.
Stutt lýsing á verkefninu: Almennt er talið að u.þ.b. 8% af allri kolefnislosun heims sé rakin til framleiðslu sements. Við erum í einstakri stöðu til þess að þróa og innleiða nýjar tegundir sements sem byggjast á hagnýtum rannsóknum sem gerðar voru af íslenskum vísindamönnum á sjöunda áratugnum. Þessi nýja tegund sements, sem byggir að hluta til á náttúrulegu íslensku móbergi, mun hafa veruleg áhrif á kolefnisspor sem tengist byggingariðnaði á Íslandi og víðar. Þetta verkefni mun þess vegna skila verulegum virðisauka á Íslandi og staðfesta stöðu Íslands sem vettvangur áþreifanlegrar nýsköpunar á sviði vistvænni mannvirkjagerðar. Markmið verkefnisins er að rannsaka eiginleika fínmalaðs íslensks móbergs sem íauka í sement til að draga úr kolefnislosun frá byggingariðnaði. Fyrstu rannsóknir benda eindregið til þess að móberg gæti hentað afar vel í þessum tilgangi.
Markmið verkefnisins er þríþætt en hér er verið að auglýsa eftir doktorsnema í fyrsta markmið verkefnisins:
1. Rannsóknir á umhverfisávinningi
2. Jarðfræðilegar rannsóknir
3. Efnisfræðilegar rannsóknir
Aðferðarfræði: Rannsóknin verður framkvæmd með aðferðarfræði lífsferilsgreiningar (LCA, Life cycle assessment).
Akademískt umhverfi: Verkefnið veitir frábært tækifæri til þess að vinna doktorsritgerð samhliða því að vinna að lausnum í einu mikilvægasta verkefni samtímans sem þáttakandi í mjög afkastamiklu og hvetjandi teymi fræðimanna. Auk ritgerðirnar mun doktorsnemandinn fá að leggja fram nýjar og vísindalegar nálganir um málefni sem hefur mikinn samfélagslegan ávinning. Starfið heyrir undir Umhverfis- og byggingarverkfræði en verkefnið er mjög þverfaglegt. Sá umsækjandi sem valinn er mun ganga í doktorsnám í ,,Umhverfisfræði“ við Umhverfis- og byggingaverkfræðideild Háskóla Íslands. Rannsóknarteymið er í nánu samstarfi í gegnum verkefnið.
Tegund ritgerðar: Ritgerðin verður í formi greinasafns. Þetta þýðir að valinn aðili birtir 3-5 fræðilegar tímaritsgreinar í samvinnu við rannsóknarteymi á meðan á doktorsnámi stendur, þar sem greinarnar eru meginefni ritgerðarinnar. Í lokin er safnhluti sem dregur saman niðurstöður úr greinunum og rökstyður helstu fullyrðingar.
Meistaragráða í verkfræði, vistfræði/umhverfisfræði, arkitektúr eða sambærilegum fræðum.
Reynsla af aðferðafræði lífsferilsgreininga er kostur.
Þekking á umhverfismati, GIS og grunnhagfræði er kostur.
Hæfni í tölfræði og stærðfræðilegri líkanagerð er kostur.
Sjálfstæð vinnubrögð og geta til að vinna í teymi.
Góð færni í ritaðri og talaðri ensku.
Ráðning í starfið er háð því að umsækjandi sæki formlega um að hefja doktorsnám við Háskóla Íslands í viðeigandi deild og að umsóknin sé samþykkt af deildinni.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn skal skrifuð á ensku og skal innihalda: i) Kynningarbréf þar sem áhuga á starfinu er lýst, ii) Ferilskrá, iii) Afrit af prófskírteinum (BSc og MSc) ásamt einkunnadreifingu, iv) Upplýsingar um tvo meðmælendur og hvernig má hafa samband við þá.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna%5Fhaskola%5Fislands
Háskóli Íslands er gróskumikið þekkingarsamfélag og er fjölbreyttur og lifandi vinnustaður. Akademískt frelsi, fagmennska og jafnrétti eru gildi skólans og er mikið lagt upp úr sveigjanleika og þátttöku starfsmanna í uppbygginu náms og rannsókna við skólann. Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa um 390 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt enda eykst sífellt hlutfall erlendra starfsmanna og nemenda við sviðið, en fjórðungur bæði starfsmanna og framhaldsnema eru erlendir. Á sviðinu eru um 2000 nemendur og fjölmargir framhaldsnemar. Verkfræði- og náttúruvísindasvið stærir sig af fjölbreytileika og umbótasinnuðu umhverfi þar sem þekkingaröflun og miðlun er í fyrirrúmi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.05.2024
Jukka Taneli Heinonen, heinonen@hi.is
Sími: 8230064
Nýdoktor við rannsóknir á hormónasvari æðaþels Hlusta Við leitum að nýdoktor til að vinna að rannsóknaverkefni við Lífvísindasetur Háskóla Íslands...
Sækja um starfDoktorsnemi í faraldsfræði Hlusta Leitað er að doktorsnema í faraldsfræði, með áhuga á hnattrænni heilsu, við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Læknadeild...
Sækja um starfDósent í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum – Háskóli Íslands – og yfirlæknir á kvenna- og barnaþjónustu Landspítala – Reykjavík Hlusta Laust...
Sækja um starfDoktorsnemi í sníkjudýrafræði Hlusta Auglýst er eftir doktorsnema sem kemur til með að starfa undir handleiðslu Dr Haseeb Randhawa og...
Sækja um starfAðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts við Menntavísindasvið Háskóla...
Sækja um starfHólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 70 starfsmenn. Sérstök áhersla er...
Sækja um starf