Leikskólakennari óskast til starfa í haust við leikskólanum Stakkaborg. Stakkaborg er 3ja deilda leikskóli þar sem lögð er áhersla á flæði og leikinn. Áætlað er að stækka leikskólann í haust og bæta við tveimur deildum við leikskólann.
Við leggjum áherslu á að leikurinn er okkar kennsluaðferð og gefum gott rými í leik barnanna. Starfið er laust frá byrjun ágúst en um er að ræða 100% starf.
Við erum öflugur hópur sem vinnur með bestu börn borgarinnar og erum alltaf að takast á við eitthvað nýtt og skemmtilegt. Hver dagur er ævintýri og við erum alltaf að læra eitthvað nýtt. Markvisst er unnið með hreyfingu og flæði milli deilda. Einkunnarorð leikskólans eru gleði, hreyfing og vinátta. Innan leikskólans vinnur öflugt starfsfólk sem leggur áherslu á að öllum börnum líði vel í leikskólanum. Við erum með alla deildarstjóra með kennsluréttindi og viljum fjölga í hópi leikskólakennara við skólann. Við erum dugleg að fara í leiki, nýta útikennslu og það sem umhverfið okkar býður uppá. Næsta vetur munum við leggja áherslu á styrkleika starfsmanna og nýta þá til að gera gott starf enn öflugra við skólann.
Leikskólinn Stakkaborg hefur tvisvar sinnum fengið verðlaun sem einn af Fyrirmyndarstarfsstöðum Reykjavíkurborgar en það er valið út frá viðhorfskönnun starfsmanna. Við höfum einnig fengið Hvatningarverðlaun vegna sérkennslu Stakkaborgar. Hér er því flottur starfsmannahópur sem leggur áherslu á að bæta enn frekar leikskólann með fagmennsku og metnað að leiðarljósi.
Starfsmannavelta er lítil og starfsmenn fá tækifæri til að vaxa í starfi út frá sínum styrkleika og áhugasviðum. Við leggjum ríka áherslu á að allir starfsmenn fái undirbúningstíma og erum með 36 stunda vinnuviku.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hæfniskröfur
Fríðindi
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Upplýsingar um starfið gefur Jónína Einarsdóttir leikskólastjóri í síma 411-3151 eða í tölvupósti jonina.einarsdottir@reykjavik.is
Starfamerkingar: atvinna í boði, Draumastarfið, gefandi starf, Grunnskóli, reykjavikurborg
KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á...
Sækja um starfNordisk Energiforskning i Oslo søker praktikanter høsten 2024 I Nordisk Energiforskning får du en praksisplass med fokus på energi og...
Sækja um starfHamraskóli er rúmlega 200 barna skóli frá 1. -7. bekk sem staðsettur er í Hamrahvefinu í Grafarvogi. Helstu verkefni og...
Sækja um starfStarfið felur í sér viðgerðir og viðhald fyrir viðskiptavini ásamt viðhaldi á tækjakosti félagsins og öðru tilfallandi. Leitað er eftir...
Sækja um starfNorðlingaskóli er heildstæður grunnskóli með um 600 nemendur í 1. – 10. bekk. Við skólann er samþætt grunnskóla- og frístundastarf....
Sækja um starfHólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 70 starfsmenn. Sérstök áhersla er...
Sækja um starf