Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í hjúkrunarfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands.
Innan Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar á Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands er starfrækt eitt af 14 ICN-vottuðum rannsókna- og þróunarsetrum í heiminum. Markmið setursins er að koma á fót samskiptaneti fyrir hjúkrunarfræðinga, heilbrigðis- og menntastofnanir og aðra hagmunaaðila til að þróa, þýða, dreifa og nota alþjóðleg flokkunarkerfi í hjúkrun (ICNP) í námi, rannsóknum og störfum hjúkrunarfræðinga.
Leitað er að hjúkrunarfræðingi með góða þekkingu á upplýsingatækni í hjúkrun og/eða heilbrigðisvísindum til að leiða ICNP setrið, þróa starfsemi þess og taka þátt í rannsóknum og kennslu við deildina.
Doktorspróf í hjúkrunarfræði, upplýsingatækni í hjúkrun/heilbrigðisvísindum eða skyldum greinum
Þekking á upplýsingatækni í hjúkrun og/eða heilbrigðisvísindum
Reynsla af vinnu við kóða- (terminology) eða flokkunarkerfi
Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum
Reynsla af háskólakennslu er æskileg
Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Starfsskyldur lektors skiptast í 48% kennslu (bæði á grunn- og framhaldsstigi), 40% rannsóknir og 12% stjórnun.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf eigi síðar en 1. júlí 2024, enda verði störfum nefndar sem um málið fjalla þá lokið.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 17.04.2024
Helga Bragadóttir, helgabra@hi.is
Störf aðjúnkta II í kennslu íslensku sem annars máls Hlusta Laus eru til umsóknar full störf aðjúnkta II við námsbrautina...
Sækja um starfDoktorsnemi í lífefnafræði/sameindalíffræði við Lífvísindasetur Háskóla Íslands Hlusta Við leitum að doktorsnema til að vinna að rannsóknaverkefni við Lífvísindasetur Háskóla...
Sækja um starfLektor í frumu- og líffærafræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors á sviði frumu- og líffærafræði við Háskóla...
Sækja um starfLektor við hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Hlusta Laust er til umsóknar 50% starf lektors við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Leitað...
Sækja um starfAðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts við Menntavísindasvið Háskóla...
Sækja um starfHólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 70 starfsmenn. Sérstök áhersla er...
Sækja um starf