Háskóli Íslands
Betri háskóli – betra samfélag
Laust er til umsóknar 50% starf lektors við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Leitað er að öflugum einstaklingi með góða almenna þekkingu á hjúkrunarfræði, sem mun aðallega koma að kennslu í öldrunar- og heimahjúkrun.
Starfið felur í sér skyldur sem lúta að rannsóknum, kennslu og stjórnun í Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild. Lektornum er ætlað að stunda rannsóknir á sérsviði sínu, taka virkan þátt í nefndarstörfum deildar, kenna í námskeiðum á grunn- og framhaldsstigi og leiðbeina nemendum í rannsóknaverkefnum á grunn- og framhaldsstigi. Einnig er lektornum ætlað að taka þátt í uppbyggingu kennslu og vísinda við deildina.
Doktorspróf í hjúkrunarfræði eða öðrum greinum á sviði heilbrigðisvísinda sem nýtast í starfi.
Sérmenntun á sviði hjúkrunarfræði.
Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum.
Reynsla af háskólakennslu.
Stjórnunarreynsla er kostur.
Reynsla af öflun styrkja til rannsóknarstarfa er kostur.
Góð samstarfshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri færni í að miðla eigin þekkingu.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar.
Æskilegt er að viðkomandi hefji störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
Ritaskrá
Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 30.04.2024
Helga Bragadóttir, helgabra@hi.is
Aðjúnkt í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts við Menntavísindasvið Háskóla...
Sækja um starfDoktorsnemi í faraldsfræði Hlusta Leitað er að doktorsnema í faraldsfræði, með áhuga á hnattrænni heilsu, við Miðstöð í lýðheilsuvísindum, Læknadeild...
Sækja um starfLektor í hjúkrunarfræði Hlusta Laust er til umsóknar fullt starf lektors í hjúkrunarfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands. Innan...
Sækja um starfStörf aðjúnkta II í kennslu íslensku sem annars máls Hlusta Laus eru til umsóknar full störf aðjúnkta II við námsbrautina...
Sækja um starfDoktorsnemi við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Hlusta Umhverfis- og byggingarverkfræðideild er með laust fullt starf doktorsnema í umhverfisfræði vegna verkefnisins „Íslenskt...
Sækja um starfHólabrekkuskóli er heildstæður grunnskóli frá 1. – 10. bekk með rúmlega 500 nemendur og um 70 starfsmenn. Sérstök áhersla er...
Sækja um starf